Shibumi Olive - Arte
Shibumi Olive – Arte
Kanso veggfóðurslínan er innblásin af japönsku hugmyndafræðinni um naumhyggju og einfaldleika í innanhússhönnun. Línan felur sér kjarna hönnunar sem sameinar glæsileg og að því er virðist einföld geómetrísk mynstur. Bólstruð áferð bætir áþreifanlegri þrívídd í rýmið á meðan mjúk flauelsefnin gefa því hlýju og notalegt yfirbragð. Útkoman er hönnun sem geislar af lúxus, án óhófs, þar sem öll mynstur og litir eru vandlega hönnuð með því markmiði að bjóða upp á tímalausan glæsileika.
Hönnunin að baki þessa veggfóðurs er innblásin af japanska hugtakinu Shibumi sem stendur fyrir samband hins einfalda og flókna. Mynstrið býður upp á heillandi sjónræna upplifun, sem er aldrei leiðinleg. Það sýnir skálagðar lengjur sem breyta skyndilega um stefnu til að skapa hreyfingu og grípandi þrívíddaráhrif. Yfirborðið er úr mjúku flauelsefni sem er ómótstæðilegt fyrir fingurgómana – maður verður bara að snerta!
Shibumi veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið
40.810 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Eternal Flower - Boråstapeter
Whales in the Sky - Boråstapeter
Flor Imaginaria Malachite Sunbird - Arte
Liljekonvalj Sage Green - Sandberg
Woods, Metallic Gold on Duck Egg - Cole & Son
Pompeian - Cole & Son
Manchas Chestnut - Arte
Lilac Grandiflora, Magenta & Blush on Charcoal - Cole & Son
Cupula Taupe - Arte
Ovillo Grenache - Arte
Serengeti - Boråstapeter
Rattan Off-White - Arte
Ottilia - Boråstapeter
Palm Leaves, Mint & Yellow - Cole & Son
Nongo Ultra White - Arte
Raphaël Green - Sandberg
Sweet Pea, Cerulean & Sky on White - Cole & Son
Manchas Chamois - Arte
Temper Mint - Arte
Weave Deep Sea - Arte
PX103A horn
Spring Birds - Boråstapeter
Emery’s Willow Herball - Morris & Co