Rispu- og fituþolið akrýllakk 40%
Rubbol BL Rezisto Semi-gloss
Rubbol BL Rezisto Semi-gloss er níðsterkt, vatnsþynnanlegt akrýllakk, ætlað til notkunar innanhúss. Rezisto lakkið er sérlega hannað til að standast álag sem í hefðbundnum lökkum veldur rispum og mýkingu vegna fitu, t.d. húðfitu (sem smám saman gerir flötinn erfiðan að þrífa). Þessir eiginleikar eru fengnir með sk. krosstengitækni (cross-linking technology) í uppbyggingu bindiefnisins. Rubbol BL Rezisto Semi-gloss hentar því afar vel í skólum, veitingastöðum, eldhúsum og öðrum svæðum þar sem mikið álag getur verið á yfirborðsflötum. Lakkið er frábært á handrið.
Rezisto lakkið er auðvelt í notkun, flýtur vel og þornar hratt. Það hylur afar vel, er lyktarlítið og gulnar ekki. Rubbol BL Rezisto Semi-gloss er ætlað sem ysta málningarlag á við, málma, PVC og annað harðplast, steypu og gifs og er borið ofan á undirlag af viðeigandi grunni.

















Veggfóðursspaði - Friess
Veggfóðurslím - Nordsjö
Slípifilt grátt - Mirka 152 x 229mm UF 1500
Veggfóðursbursti - Friess, 30 cm
Bellini, China Blue - Cole & Son
Pushkin, Green - Cole & Son
Pallamoppa - Anza, 2-in-1 skiptimoppa
Veggfóðurslím - Arte Clearpro Extreme