Rispu- og fituþolið akrýllakk 80%
Rubbol BL Rezisto High Gloss
Rubbol BL Rezisto High Gloss er háglansandi og níðsterkt vatnsþynnanlegt akrýllakk, ætlað til notkunar innanhúss. Lakkið er sérlega hannað til að standast álag sem í hefðbundnum lökkum veldur rispum og mýkingu vegna fitu, t.d. húðfitu (sem smám saman gerir flötinn erfiðan að þrífa). Þessir eiginleikar eru fengnir með sk. krosstengitækni (cross-linking technology) í uppbyggingu bindiefnisins. Rubbol BL Rezisto High Gloss hentar því afar vel í skólum, veitingastöðum, eldhúsum og öðrum svæðum þar sem mikið álag getur verið á yfirborðsflötum. Lakkið er frábært á handrið.
Rubbol BL Rezisto High Gloss lakkið er auðvelt í notkun, flýtur vel og þornar hratt. Það hylur afar vel. Lakkið er ætlað sem ysta málningarlag á við, málma, PVC og annað harðplast, steypu og gifs og er borið ofan á undirlag af viðeigandi grunni.

















Seglar fyrir segulmálningu, 10 stk – Smarter Surfaces™
Megafiller spartl 1L
Skjávarpamálning hvít fyrir ljós rými, háskerpa - Smarter Surfaces™
Votrýmisspartl 250 gr
Tamba Coral - Arte
Strelitzia Hickory - Arte
Strelitzia Camel - Arte
Tamba Pebble - Arte