Reflect Mink - Arte
Reflect Mink – Arte
Veggfóðrin í línunni Prismatic fanga augnablikið þegar ljós brotnar, beygist og dreifist í líflegt litróf. Þau kalla fram heillandi áhrif prismans sem endurkastar ljósi í ótal áttir – björtu, óvæntu og á stöðugri hreyfingu. Náttúruleg efni, svo sem raffía, ramítrefjar og hampur, skapa róandi yfirbragð og áþreifanlega hlýju á veggina og skapa þannig heillandi andrúmsloft.
Reflect veggfóðrið er gert úr vönduðum raffíaræmum sem hafa verið handlitaðar, ofnar og loks skornar til og lagðar í formið sem myndar Reflect mynstrið. Geómetrískt útlitið vísar óbeint til margbrotinnar samhverfu á flötum demanta.
Reflect er handverk, unnið úr náttúrulegum raffíalengjum. Veggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
43.400 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Lin Grain de Poivre - Arte
Itaya Coquille - Arte
Old Pine Trees - Rebel Walls
Lin Normandie Paillotte - Arte
Lin Craie - Arte
Magnolia Garden - Boråstapeter
Ceder, Gray - Sandberg
Polka Stripe - Boråstapeter
Sabal Golden Forest - Arte
Acacia, Charcoal & Metallic Silver on Soot - Cole & Son
Soft Jade - Boråstapeter
Terre de Lin Welcome - Arte
Emery’s Willow Chrysanthemum Pink - Morris & Co
Montagna Cocoa - Arte
Bluebell, Leaf Green & Cerulean Sky on Chalk - Cole & Son
Malabar - Cole & Son
Bower Indigo/Barbed Berry - Morris & Co
Lin Nautique - Arte
Puro Mushroom - Arte
Alicia - Boråstapeter
Shades Sandstone - Boråstapeter
Granville Champagne - Arte
Sergé Muscade - Arte
Cashmere Cinnamon - Arte