Quilt Medaillon - Arte
Quilt Medaillon – Arte
Tímalaus lúxus fyrir fágaða uppreisnarmenn: Hvert einasta veggfóður í Metal X Patina línunni er prentað á málmþynnu til að skapa listrænt, veðrað múrútlit á veggi. Mynstrin eru innblásin af gömlum málningaraðferðum eða handverki. Beitt var háþróaðri prenttækni sem sameinar matt útlit með gljáandi svæðum hér og þar til að skapa líflega og náttúrulega patínu.
Gömul bútasaumsteppi gáfu innblásturinn að þessari hönnun, Quilt. Hér samanstendur mynstrið af bútum úr textílprufum sem voru prentaðar á málmþynnu og síðan þaktar af svo þunnu lagi af múrgifsi að textílefnið skín í gegn.
Quilt er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
17.877 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun












