Chalk Stone Inca Gold - Arte
Chalk Stone Inca Gold – Arte
Tímalaus lúxus fyrir fágaða uppreisnarmenn: Hvert einasta veggfóður í Metal X Patina línunni er prentað á málmþynnu til að skapa listrænt, veðrað múrútlit á veggi. Mynstrin eru innblásin af gömlum málningaraðferðum eða handverki. Beitt var háþróaðri prenttækni sem sameinar matt útlit með gljáandi svæðum hér og þar til að skapa líflega og náttúrulega patínu.
Chalk Stone er hönnun sem snýst um smáatriði og er hylling til travertíns, krítarsteins sem notaður er til að gera sjálfbærar handverksflísar. Rómverjar notuðu travertín til að byggja stóra hluta Rómar, þar á meðal Colosseum. Þessi málmprentútgáfa sker sig úr vegna einfaldleika síns.
Chalk Stone er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
17.877 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun












