Impasto Gunmetal - Arte
Impasto Gunmetal – Arte
Tímalaus lúxus fyrir fágaða uppreisnarmenn: Hvert einasta veggfóður í Metal X Patina línunni er prentað á málmþynnu til að skapa listrænt, veðrað múrútlit á veggi. Mynstrin eru innblásin af gömlum málningaraðferðum eða handverki. Beitt var háþróaðri prenttækni sem sameinar matt útlit með gljáandi svæðum hér og þar til að skapa líflega og náttúrulega patínu.
Impasto veggklæðningin er nefnd eftir aldagamalli málningartækni þar sem málningin er lögð mjög þykkt á yfirborðið með sýnilegum pensilstrokum sem eykur áferð veggfóðursins og gefur því raunsannt útlit. Impasto er prentað á málmpappír og sameinar það besta úr báðum heimum: óaðfinnanlega blöndu af handverki og iðnaðarlegu útliti og áferð.
Impasto er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að gera bakhliðina raka með vatnsúða áður en límið er sett á vegginn og veggfóðrið lagt á. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
17.877 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun











