“Detour Silver Linen – Arte” hefur verið bætt í vörukörfuna þína. Skoða körfu

Puzzle Warm White - Arte
41.200 kr. lengdarmetraverð
Puzzle Warm White – Arte
Puzzle er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrulegum sísalvef. Mynstrin eru rúmfræðileg, litrík og óregluleg með bæði beinum línum og bognum formum. Þó bútasaumurinn virki óreglulegur passa púslustykkin samt fagurlega saman. Ósvikið listaverk á vegg! Litur: Silfurhvítur.
Puzzle sísalvefurinn er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið bæði á vegg og á bakhlið veggfóðurs. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
41.200 kr. lengdarmetraverð
Rúllubreidd: 90 cmMynsturhæð: 110 cm
Vörunúmer:
72780
Vöruflokkar: Arte, Marqueterie, Veggfóður
Stikkorð: Abstrakt eða geómetrískt, Einlitt, Náttúruleg efni, Textíláferð