Pure Strawberry Thief, Silver/Stone - Morris & Co
Pure Strawberry Thief, Silver/Stone – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Lítill óskammfeilinn fugl kroppar í ljúffeng jarðarber á þessu lokkandi blómamynstri, Pure Strawberry Thief, sem er eitt alþekktasta veggfóður Morris. Hér er það í endurgerð í mildum og hlutlausum litum, með fínlega upphleypta áferð til að varðveita handgert útlit upprunalegu hönnunarinnar.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
42.600 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun






























Lin Normandie Vintage - Arte
Punchinello, Neutrals on Pale Sand - Cole & Son
Lin Bone - Arte
Faded Passion Misty Blue - Sandberg
Celeste, Indigo Blue - Sandberg
Lin Nautique - Arte
Lin Fantóme - Arte
Sergé Muscade - Arte
Stella Sandstone - Sandberg
Lin Normandie Gentleman - Arte
Hollie, Terracotta - Sandberg
Lin Normandie Zen - Arte
Lin Bristol - Arte