Pink & Rose, Cowslip/Fennel - Morris & Co
Pink & Rose, Cowslip/Fennel – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Rósir og nellikkur hlykkjast um á Pink & Rose veggfóðrinu og mynda endurtekið lóðrétt mynstur. Hugmyndina að Pink & Rose fékk Morris upphaflega árið 1890 og var það handprentað með tveimur settum af viðarblokkum. Þetta veggfóður færir sumarið inn í rýmið.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.205 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Le Sisal Sahara - Arte
Fig Garden Garden Green - Sandberg
Safari Dance, Ginger & Red on Linen - Cole & Son
Marlene Mural - Boråstapeter
Senzo Spot, Soot & Snow - Cole & Son