Marigold, Artichoke – Morris & Co
35.205 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Með einum lit skapaði Morris mörg töfrandi mynstur sem koma jafnvel út á veggfóðri sem textíl. Marigold frá 1875 er ein slík hönnun sem er tímalaus og á alls staðar vel við.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



































































Lin Normandie Marais - Arte
Annabelle Terracotta - Sandberg
Macchine Volanti, Sky Blue - Cole & Son (2 rúllur)
Marigold, Artichoke - Morris & Co
Terre de Lin Mushroom - Arte