Lin Normandie Opaline - Arte
Lin Normandie Opaline – Arte
Flamant Honoré veggfóðurslínan er hluti af belgíska vörumerkinu Flamant, sem margir þekkja hérlendis, m.a. fyrir vönduð húsgögn og innanhússhönnun. Lengi vel hefur Flamant í samvinnu við Arte skapað sínar eigin veggfóðurslínur sem orðnar eru íkonískar í heimi innanhússhönnunar. Hör er grunnurinn að hönnuninni en hör er almennt talinn fjölhæfasti vefnaðurinn í innanhússhönnun vegna endingar, öndunareiginleika og hlýlegs og náttúrulegs útlits. Honoré línan er virðingarvottur við þessa textílklassík, sem spannar rófið frá hinu hversdagslega til hins fágaða í þremur einstökum útgáfum af hörmynstri. Allar kalla þær fram sama náttúrulega sjarmann.
Lin Normandie er afar raunsæ útfærsla á opnum hörvef með lausofnu útliti. Þetta fjölhæfa en látlausa veggfóður kemur í fjölmörgum litum og undirstrikar fegurð og stemningu í hvaða rými og hönnunarstíl sem er.
Lin Normandie veggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum síðar meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
31.093 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Flower Parade, Licorice - Rebel Walls
Magnus, Clay - Sandberg
Sandra Sandstone - Sandberg
Shimmer Brick - Arte
Year Of The Tiger Saffron - Rebel Walls
Lilac, Lilac & Heath Grey on White - Cole & Son
W116 Bar XL veggþiljur
Le Sisal Sahara - Arte
SX183 alhliða listi
Efraim, Night - Rebel Walls
P9901 vegglisti