Lana Espresso - Arte
Lana Espresso – Arte
Flestum okkar þykir mikilvægt að góð innanhússhönnun geisli frá sér hlýju og notalegheitum. Ull skapar einmitt slíka tilfinningu í rýmin og er einmitt innblástur fyrir Merino línuna. Línan samanstendur af þremur látlausum mynstrum sem eru túlkun á ullarvefnaði í háum gæðum. Náttúrulegir litirnir eru tilvalinn bakgrunnur með hlýlegri og lifandi áferð sem skapar áreynslulaust jafnvægi á móti „harðari“ efnum, svo sem gleri, málmi og steypu.
Lana er afar nákvæm túlkun á þéttofinni ull. Mildir litatónarnir skapa dýpt og gefa veggfóðrinu ótrúlega raunsæislegt ullarútlit.
Lana er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Líming: a) Setjið límið á bakhlið veggfóðursins EÐA b) rúllið líminu á vegginn en þá þarf að úða bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi áður en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Leiðbeiningar fyrir ARTE veggfóður með pappírsbaki
Myndbönd fyrir báðar aðferðir á uppsetningu á veggfóðri með pappírsbaki
32.425 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun





























Petite Fleur, Peach & Blush - Cole & Son
Nongo Malt - Arte
Terrain Earth - Rebel Walls
Sarana Mahogany - Arte
Linne Garden Green - Sandberg
Arashiyama Green - Sandberg
Le Raphia Tissé Ivory - Arte
Handfang - Friess, 18cm
Blooming Park Dark - Rebel Walls
Balabina, Red on Crimson - Cole & Son