Katia Silk Papaya - Arte
Katia Silk Papaya – Arte
Wild Silk veggfóðurslínan er úr ekta silki en það undirstrikar fjölbreytni þessa hreina textíls að í línunni eru þrjár mismunandi tegundir af silki. Hver tegund hefur sína sögu að segja; ein hefur mjúkan gljáa, önnur er grófofin og sú þriðja býr yfir fínlegri fágun. Allar útgáfurnar bera með sér auðsæja lúxus tilfinningu sem einungis ekta silki gerir. Náttúruleg áferðin bætir tímalausum sjarma við öll rými.
Katia samanstendur af einstakri blöndu af 80% handspunnu Katia silki og 20% bómull. Katia silkispunanum er safnað úr lirfuhýði villifiðrilda, eftir það eru stuttu mjúku þræðirnir handspunnir í þykkt, óreglulegt garn. Þegar bómullargarni er síðan snúið saman við silkibandið myndast grípandi áhrif andstæðnanna – matt og glans. Mismunandi þykkt þráðanna gefur veggfóðrinu skemmtilega, óvænta áferð og einstakt náttúrulegt útlit.
Katia veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
49.500 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Sarana Driftwood - Arte
Le Sisal Terracotta - Arte
Terre de Lin Le Flot Bleu - Arte
Lin Nautique - Arte
Welcome To The Jungle, Authentic - Rebel Walls
Tamba Coral - Arte
Terre de Lin Parchemin - Arte
Opulence - Rebel Walls
Terre de Lin Dulce - Arte
Lin Normandie Paillotte - Arte
Terre de Lin Mint - Arte
Jaipur, Sage - Rebel Walls
Lin Noir de Lune - Arte
Anton, Misty Blue - Sandberg
Lin Normandie Chanvre - Arte
Svampur - náttúrulegur
Fruit Garden Lilac - Rebel Walls
Lin Normandie Zen - Arte
Terre de Lin Saint Barth - Arte
Lin Chaume - Arte