Chrysanthemum Toile, Eggshell/Gold - Morris & Co
Chrysanthemum Toile, Eggshell/Gold – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Chrysanthemum mynstrið var upphaflega hannað fyrir veggfóður árið 1877. Í þessari framsetningu dregur myndsköpunin fram smáatriði og glæsileika upprunalega textílmynstursins. Það er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með pappírsbaki
35.205 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Emrik, Blue - Sandberg
Magnolia Garden - Boråstapeter
Pine, Blue - Sandberg
Veggfóðurslím - Arte Clearpro Extreme
Lin Smoke - Arte
Lin Ballet - Arte
Cheetah Prowl, Bronze - Cole & Son
Irene Olive Green - Sandberg
Kalahari, Stone & Charcoal - Cole & Son
Granville Ochre - Arte
Aino, Peach - Sandberg
Willow Boughs, Green - Morris & Co