Canvas Sand - Arte
Canvas Sand – Arte
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í sandlit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Puro Mocha - Arte
Pantheon Cream - Arte
Shimmer Brass - Arte
Narina, Soot & Snow - Cole & Son
Zanjan, Ash - Rebel Walls
Canvas Graphite - Boråstapeter
Daphne - Boråstapeter
Cashmere Tan - Arte
Temper Green Tea - Arte
Paradise Birds - Boråstapeter
Vinnie Linen - Sandberg
Terre de Lin Saint Barth - Arte
Rambling Rose Leafy Arbour/Pearwood - Morris & Co
Maj Sandstone - Sandberg
Lily Swan - Boråstapeter
Scaramouche - Cole & Son
Cuadro Ochre - Arte