Bower Herbal/Weld - Morris & Co
Bower Herbal/Weld – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Bower veggfóðrið er undir áhrifum frá miðalda tréskurði, hannað af William Morris 1877 sem lifandi virðingarvott um göngutúrana í skóginum og blómin sem hann dáði svo mjög. Bower snýr aftur í framleiðslu hjá Morris & Co í fyrsta sinn í mörg ár í hönnunarlínu Emery Walker‘s House, og endurómar fallega garðinn sem Dorothy Walker hefur viðhaldið af kærleika. Af fjórum litasamsetningum er Bower Boughs Green/Rose sú sem kemur næst upprunalegu hönnuninni.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.892 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun





























Sophia - Boråstapeter
Eri Silver Sand - Arte
Stairway Graffiti, Swallow - Rebel Walls
Peaseblossom, Fuchsia on Oat - Cole & Son
Nelson Ash Purple - Arte
Malabar - Cole & Son
Alma Espresso - Arte
Soft Olive - Boråstapeter
Jennie Hazel - Sandberg
Nongo Ultra White - Arte
Stravinsky, Metallic Gilver - Cole & Son
Sergé Denim - Arte