Artichoke, Wine – Morris & Co
37.892 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Stórglæsilegt ætiþistlamótíf í yfirstærð skapar dramatík í veggfóðursmynstrinu Artichoke. Upphaflega er það hannað af John Henry Dearle sem marglita mynstur árið 1838, en Dearle var helsti samstarfsmaður William Morris. Hér er Artichoke mynstrið endurútgefið í töfrandi eintóna útgáfu sem hentar jafnt í klassískum sem nútímalegum húsum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



































































Afrika Kingdom, Olive Green & Spring Green on Black - Cole & Son
Terre de Lin Lune de Miel - Arte
Terre de Lin Zoulou - Arte
Bastoni Cream - Cole & Son
Lin Normandie Cimento - Arte
Alba Mushroom - Arte
Terre de Lin Cabanon - Arte
Macchine Volanti, Stone, Rouge & Blue - Cole & Son (2 rúllur)
Lin Normandie Chanvre - Arte
Alexandra Sandstone - Sandberg
Meadow, Olive - Cole & Son
Mediterranea White & Black - Cole & Son
Adelaide Blue - Sandberg
Terre de Lin Tweed - Arte