Alba Plaster – Arte
41.200 kr. lengdarmetraverð
Melaky veggklæðningarnar byggja á fjölbreyttri náttúru Melaky, héraðs á eynni Madagaskar með sínum þurru sléttum, graslendi og þéttum fenjavið. Mórberjatréð og raffíapálminn vaxa þar víða og skapa innblástur fyrir þessa hönnunarlínu. Hún byggir á handverksaðferðum þar sem unnið er með börk mórberjatrésins og trefjar raffíapálmans. Áferð og hlýir, náttúrulegir litir sameinast í fallega lífrænt yfirbragð sem skapar tilfinningu fyrir einfaldleika og dýpt. Algerlega tímalaus hönnunarlína.
Rubra klæðningin er gerð með því að fella saman stór stykki af mórberjaberki í geómetrískt mynstur, á bakgrunn með örlitlum gljáa. Óregluleg uppbygging barkarins skapar lífleg áhrif á vegginn, þar sem náttúrulegar trefjarnar og mismunandi litbrigðin gefa honum leikandi látleysi og lúxus. Þessi hönnun dregur nafn sitt af Morus rubra, sem þýðir rauða mórberið.
Rubra er handverk, unnið úr náttúrulegum mórberjaberki. Takið eftir að lítilsháttar litamismunur og óregluleg áferð eru náttúruefnum og handunninni vöru eðlislæg. Slíkt eykur á fegurð þeirra. Rubra er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
















Archipelago Border - Cole & Son
Woods, Grey & White - Cole & Son
Instinct - Omexco
Göteborg - Boråstapeter
Impulse - Omexco
Hagtorn - Boråstapeter
Feather Fan, Taupe - Cole & Son
Vallmo - Boråstapeter
Piccadilly - Cole & Son
Kalahari, Forest Green & Racing Green - Cole & Son
Palm Leaves, Viridian - Cole & Son
Safari Totem, Ginger & Taupe on Charcoal - Cole & Son
Petite Tile, Powder Blue - Cole & Son
Titania, Metallic Pewter on Soot - Cole & Son
Peerless - Omexco
Scaramouche - Cole & Son
Scaramouche - Cole & Son