Affinity - Omexco
Affinity – Omexco
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Affinity úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrutrefjum. Það býr yfir áþreifanlegum töfrum í fallega ofnu ferningamynstri. Affinity er úr cattail trefjum sem eru síðan vandlega handmálaðar í þremur litum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Spreyið bak veggfóðurs vel með vatni og leyfið því að sjúga í sig rakann a.m.k. í 20 mínútur. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
19.273 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun































Impulse - Omexco