Impulse – Omexco
19.588 kr. lengdarmetraverð
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Impulse úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrutrefjum. Kjarni hönnunarinnar felst í áþreifanlegum töfrum og fallega fléttuðu ferningamynstri. Impulse er úr mórberjavef og kemur í tveimur litum sem hvor um sig sýnir mörg lífleg litbrigði.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Úðið bak veggfóðurs vel með vatni og leyfið því að sjúga í sig rakann a.m.k. í 20 mínútur. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun

































Nuvolette, Metallic Gilver & Charcoal - Cole & Son (2 rúllur)
Macchine Volanti, Stone, Rouge & Blue - Cole & Son (2 rúllur)
Malachite Midnight & Metallic Silver - Cole & Son
Chiavi Segrete Metallic Gilver & Metallic Gold - Cole & Son
Frutto Proibito Print Room Blue & Lemon - Cole & Son
Injisuthi, Viridian - Cole & Son