Aesthetic - Omexco
Aesthetic – Omexco
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Aesthetic úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrutrefjum. Vefurinn er látlaus og undirstrikar eðlislæga fegurð ungra abaca plöntutrefja.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Vætið bak veggfóðurs jafnt með vatnsblautum svampi og bíðið í um 5 mínútur á meðan það sýgur rakann í sig þar til það er límt á vegginn. Athugið að límið er sett á vegginn, ekki veggfóðrið. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
12.788 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun































Linked - Omexco