Hálfþekjandi viðarolía Filter 7
Cetol Filter 7 plus
Cetol Filter 7 er hálfþekjandi terpentínuþynnanleg alkýðolía, ætluð til notkunar á við utanhúss. Efnið er háfyllandi (e. high solid) með innbyggðri UV-sólarvörn sem viðheldur teygjanleika efnisins og tryggir góða endingu. Viðarvíurnar haldast áfram vel sýnilegar – engin önnur tegund viðarvarnar gefur svo mikla dýpt og dregur fram fegurð viðarins. Cetol Filter 7 viðarolían er veðurþolin því hún myndar örfína gegndræpa filmu sem virkar þannig að yfirborðið dregur ekki í sig viðbótarraka utan frá á meðan raki kemst í gegn innan frá (e. microporous). Yfirborðið er því vatnsfráhrindandi og óhreinindi festast ekki á fletinum. Þetta þýðir framúrskarandi viðarvörn sem hindrar myglu- og þörungavöxt, flögnun og sprungumyndun. Cetol Filter 7 er mjög auðveld í notkun og einfalt að viðhalda viðnum með efninu.
Cetol Filter 7 viðarolían er notuð sem lokaumferð á tréverk úr nýjum við, hvort sem viðurinn er mjúkur (s.s. greni og fura) eða harðviður (s.s. tekk, sedrus og maghoní). Ætíð skal nota Cetol HLS plus sem fyrstu umferð á nýjan við.
















Stravinsky, Viridian - Cole & Son
Petrouchka, Hyacinth Blue - Cole & Son
Petrouchka, Red - Cole & Son
Carmen, Metallic Bronze - Cole & Son
Carmen, Metallic Gilver - Cole & Son
Pushkin, Green - Cole & Son
Fonteyn, Soft Olive - Cole & Son
Bellini, Grey - Cole & Son
Bellini, Soot & Snow - Cole & Son
Petrouchka, Charcoal - Cole & Son
Giselle Mica, Pearl - Cole & Son
Balabina, White on Yellow - Cole & Son
Carousel, Stripe Linen - Cole & Son