fbpx

Að hreinsa harðvið

Að hreinsa harðvið 

Aðferð

Við almennt viðhald fyrir palla og skjólveggi í góðu ástandi og þar sem olíufilman er í lagi nægir að þvo fleti með alhliða hreinsiefninu Universal Målartvätt (þynntu 1:20 með vatni) áður en olíuborið er. Ef smávegis grámi er kominn í viðinn nægir að nota harðviðarhreinsinn Xyladecor. Þegar verulega er farið að sjá á viðnum þarf að fjarlægja grámann með Nordsjö pallahreinsi og síðan harðviðarhreinsinn Xyladecor. Takið eftir að viðurinn dökknar mikið við notkun á pallahreinsinum en náttúrulegi liturinn næst tilbaka með harðviðar-hreinsinum. Ef lakk- eða málningarfilma er á viðnum getur þurft slípun eða málningaruppleysinn Asur fyrst til að fjarlægja lakk-/málningarfilmuna.

Hreinsiefnin sem nefnd eru hér fyrir neðan leysa ekki upp málningu. Hér er vinnuferlið þegar bæði hreinsiefnin eru notuð:

  1. Bleytið flötinn vel með vatni, berið Tinova Wood Cleaner pallahreinsinn á viðinn með pensli, kústi eða rúllu. Notið hanska og hlífðargleraugu. Látið hreinsinn liggja á viðnum í 15-30 mínútur. Skrúbbið efninu vandlega inn í flötinn, 2-3 metra í einu. Forðist að láta hann þorna á meðan því virknin í efninu stöðvast ef flöturinn þornar.
  2. Beitið léttum háþrýstiþvotti uns allt hreinsiefnið hefur verið fjarlægt. Smúlið með varúð svo viðurinn strikist síður. Ef óhreinindin hafa ekki horfið að fullu má endurtaka þvottinn.
  3. Berið síðan Xyladecor harðviðarhreinsinn þykkt á rakan viðinn strax í kjölfarið. Látið Xyladecor liggja á fletinum og skrúbbið yfir þar til hann hættir að lýsast, eða í um 20 mínútur. Þannig verður viðarliturinn sem jafnastur.
  4. Beitið léttum háþrýstiþvotti uns allt hreinsiefnið hefur verið fjarlægt. Smúlið með varúð svo viðurinn strikist síður.
  5. Slípið yfir yfirborðið með sandpappír nr. 80-100. Gott er að nota þar til gerð slípibretti á skafti.

Látið flötinn þorna vel í um 3-5 daga eftir aðstæðum áður en olían er borin á.

Fylgið verklýsingunni „Að bera olíu á harðvið“ að lokinni hreinsun. Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.

Heilsufars- og umhverfismál

Ekki láta málningar­dósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.

Tæknilegar upplýsingar

PALLAHREINSIR: Nordsjö Tinova Wood Cleaner

Tegund: Alkalískur viðarhreinsir

Þynning: Notið helst óþynnt

Verkfæri: Penslar, kústar, rúllur

Efnisnotkun: Um 4-6 m2/l; efnismagn fer eftir aðferð, tegund og ástandi viðarins

Athugið: Tinova Wood Cleaner ætir gler, ál og fleti sem eru viðkvæmir fyrir alkalí

 

HARÐVIÐARHREINSIR: Xyladecor Ontgrijzer

Tegund: Súrt hreinsihlaup (e. oxalic acid)

Þynning: Notið óþynnt

Verkfæri: Penslar, rúllur, kústur, stífur

svampur. Hreinsið verkfæri með vatni strax að lokinni notkun

Efnisnotkun: Allt að 8 m2/l; efnismagn fer eftir vinnsluaðferð, tegund og ástandi viðarins

Fer eftir aðferð, tegund og ástandi viðarins

Fleiri blogg

Nýmálað á Nönnustíg

Húsið við Nönnustíg á stutt í áttræðisafmælið. Þrátt fyrir það er húsið einstaklega glæsilegt eftir viðgerðir og málun í sumar.

Shopping cart

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping