Að olíubera harðvið

Að olíubera harðvið

Áður en olía er borin á harðviðarpalla skal fylgja verklýsingunni „Að hreinsa harðvið“ á heimasíðu Sérefna. Þetta á bæði við um nýjan og mjög veðraðan harðvið. Við hreinsunina fjarlægjast tannín og gamlar olíur af yfirborði viðarins, sem og grámi og óhreinindi. Látið pallinn þorna vel í um 3-5 daga eftir hreinsun.

 

A. Harðviðarpallar

Nýmálun harðviðarpalla:

  1. Hreinsun (sbr. fyrrnefnda verklýsingu).
  2. Hrærið vel í dósinni. Berið á fyrstu umferð af Cetol HLS Plus og síðan aðra umferð af Tinova Allround Oil pallaolíu í viðeigandi lit. Passið að draga olíuna jafnt og ríkulega á viðinn með pensli. Bera þarf vel á mjög gljúpa fleti þar til þeir mettast. Ætíð skal bera á viðinn endilangt og forðast að búa til færsluskil (aukalitstyrk) á miðju borði. Þurrkið burt umframolíu svo ekki myndist þykk filma á viðnum. Það er best gert með því að draga þurran pensilinn yfir flötinn og verður áferðin þá jöfn og falleg

Endurmálun harðviðarpalla, viðhald (getur þurft árlega vegna þéttni viðarins):

  1. Hreinsið pallinn (sbr. fyrrnefnda verklýsingu).
  2. Hrærið vel í dósinni. Berið á fyrstu umferð af Cetol HLS Plus og síðan aðra umferð af Tinova Allround Oil pallaolíu í viðeigandi lit. Passið að draga olíuna jafnt og ríkulega á viðinn með pensli. Bera þarf vel á mjög gljúpa fleti þar til þeir mettast. Ætíð skal bera á viðinn endilangt og forðast að búa til færsluskil (aukalitstyrk) á miðju borði. Þurrkið burt umframolíu svo ekki myndist þykk filma á viðnum. Það er best gert með því að draga þurran pensilinn yfir flötinn og verður áferðin þá jöfn og falleg

B. Standandi harðviður

Nýmálun hurða, glugga, veggja – þriggja umferða kerfi:

  1. Hreinsun (sbr. fyrrnefnda verklýsingu).
  2. Hrærið vel í dósinni. Berið á fyrstu umferð af Cetol HLS Plus í viðeigandi lit. Berið olíuna jafnt og ríkulega á viðinn með pensli. Bera þarf vel á mjög gljúpa fleti þar til þeir mettast. Ætíð skal bera á viðinn endilangt og forðast að búa til færsluskil (aukalitstyrk) á miðju borði.
  3. Málið næstu umferð með Cetol HLS Plus eða Cetol Filter 7 í lit.
  4. Sem lokaumferð skal loks bera glæran eða litaðan Cetol Filter 7 á viðinn.

Endurmálun hurða, glugga, veggja og viðhald:

  1. Hreinsið viðinn (sbr. fyrrnefnda verklýsingu).
  2. Hrærið vel í dósinni. Berið 1-2 umferð af Cetol Filter 7 í lit á vel þurran og hreinan flötinn. Berið olíuna jafnt og ríkulega á viðinn með pensli. Bera þarf vel á mjög gljúpa fleti þar til þeir mettast. Ætíð skal bera á viðinn endilangt og forðast að búa til færsluskil (aukalitstyrk) á miðju borði.

Viðhaldið fletinum með 1 umferð á 1-3 ára fresti. Þannig heldur viðurinn sinni upprunalega útliti sem lengst. Þegar litstyrkurinn er orðinn nægilegur skal velja minni litstyrk eða jafnvel glæra olíu næst þegar borið er á.

Athugið að vegna mikils raka getur verið varasamt að bera á viðinn of snemma á vorin eða seint á haustin. Ekki bera á mjög snemma dags eða seint að degi.

*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping