Woodblock Beetle Flora, Walnut - Arte
Woodblock Beetle Flora, Walnut – Arte
Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé vefnaðar.
Woodblock Beetle Flora veggfóðrið er handunnið og spónlagt úr náttúrulegum eðalvið. Mynstrið er gert úr hliðstæðum tónum og er vandlega raðað upp í tvær áttir, sem skapar fínlega blöndu tóna sem minna á klassíska útskurðarlist.
Woodblock Beetle Flora veggfóðrið er úr náttúrulegum spónvið með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að gera bakið rakt áður en veggfóðrið er límt upp – límið er sett á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
28.830 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Terre de Lin Lune de Miel - Arte
Lin Gris Brouillard - Arte
Valv White - Sandberg
Temper Charcoal - Arte
Pensill - Stoopen & Meeus,150mm
Rand Sandstone - Sandberg