
Willow Boughs Green - Morris & Co
Willow Boughs Green – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Willow Boughs var fyrst framleitt árið 1887 og er eitt af mynstrum Morris sem þekkjast á augabragði. Stilkar og viðkvæm grátvíðisblöð fléttast saman í þessa langlífu hönnun – sem skilgreinir í sjálfu sér varanlegan orðstír Morris í hönnunarheiminum. Mynstrið er yfirborðsprentað, hér í nýjum og ferskum litasamsetningum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
33.224 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun
Tengdar vörur
Tengdar vörur
-
Acquario Dark Viridian – Cole & Son
57.493 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Ardmore Cameos, Grey – Cole & Son
34.409 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Aurelie Mural, Light Blue – Sandberg
6.650 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Belle Ocean Blue – Sandberg
11.882 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Blossom II – Boråstapeter
6.279 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Botanis Moss Vanilla – Arte
34.744 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Caisson – Arte
38.290 kr. lengdarmetraverð Setja í körfu -
Charlie – Boråstapeter
15.287 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Doudeville – Arte
195.400 kr. Setja í körfu -
Facet Antique Gold – Arte
35.597 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Hollie Dark Blue – Sandberg
11.882 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Inger, Sandstone – Sandberg
6.900 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Katan Silk Cream – Arte
54.500 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Lignes Paille – Arte
41.136 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Matiz Camel – Arte
54.500 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Peony – Boråstapeter
16.424 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Rand Garden Green – Sandberg
9.636 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Raphael Sky Blue – Sandberg
18.777 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Rose Garden – Boråstapeter
12.448 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Sambe Natural Black – Arte
16.388 kr. lengdarmetraverð Setja í körfu -
Sarana Canyon – Arte
48.608 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Senzo Spot, Charcoal & Metallic Gold – Cole & Son
27.454 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Stig Lindberg Prunus – Boråstapeter
18.580 kr. rúlluverð Setja í körfu -
The Rabbit’s Playground – Rebel Walls
6.650 kr. fermetraverð Setja í körfu -
The Swedish Forest – Rebel Walls
6.650 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Valborg – Boråstapeter
14.726 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Vega – Boråstapeter
8.225 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Weave Glazed White – Arte
47.118 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Woods & Pears – Cole & Son
30.140 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Woods & Stars, Midnight – Cole & Son
30.525 kr. rúlluverð Setja í körfu