Walthamstow, Forest/Teal -Morris & Co
Walthamstow, Forest/Teal -Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Walthamstow er svæði á Englandi sem var William Morris afar kært. Veggfóðrið með sama nafni er aðlögun á mynstri sem hann hannaði upphaflega fyrir teppi. Lóðrétti borðinn með stílfærðum blómum geitartoppsins fannst í blýantsskissum Morris og hefur hönnuðateymið aðlagað hann til að ramma inn annað blómamynstur Morris í dæmigerðum 19. aldar stíl. Geitartoppur, margarétur og súlublómalauf snúast þar saman í athyglisverðri endurtekningu. Hér hefur teymið unnið vel og skapað sérlega litfagurt mynstur.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.759 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Sabal Abalone - Arte
Cornelia - Boråstapeter
Northern Forest - Boråstapeter
Hagtorn - Boråstapeter
Shades Phonolite - Boråstapeter
Hagtorn - Boråstapeter
Peony Trellis, Bayleaf/Slate - Morris & Co
Lent Lily, Indigo/Madder - Morris & Co
Cornflower, Madder/Forest - Morris & Co
Stella - Boråstapeter
Göteborg - Boråstapeter
Diamonds - Boråstapeter
Marie - Boråstapeter
Änggården - Boråstapeter
Lilly, Blush - Sandberg
Skurðarstika fyrir veggfóður - Mako, 58cm
Canvas Yellow - Boråstapeter
Chinoiserie Garden, Pink - Sandberg
Woodbell & Anemone, Woad/Nettle - Morris & Co
Bílaspartl 1 kg
Pússklossi - Friess, einfaldur með frönskum
Chinoiserie Garden, Dark - Sandberg
Tengbergska - Boråstapeter
Värmdö - Boråstapeter
Scrolling Tulip, Gold - Morris & Co
LED ljóskastari - Friess, 30W 2400 lm
Hip Rose - Boråstapeter
Canvas Olive - Boråstapeter
Vallmo - Boråstapeter
Diamonds - Boråstapeter
Nejlikerand - Boråstapeter
Wild Tulip & Vine, Nettle/Woad - Morris & Co