
Twill Silver Pine - Arte
Twill Silver Pine – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Twill veggfóðrið er einmitt hannað sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Grunnefnið í Twill veggfóðrinu er hitabeltisplantan pandan. Plöntutrefjarnar eru ofnar saman í höndunum og síðan eru þær skornar á ská í ræmur. Loks eru þær fléttaðar saman. Innblásturinn er sóttur í ýmis fléttumynstur sem njóta mikilla vinsælda í tískuheiminum og innanhússhönnun.
Twill er handgert, náttúrulegt veggfóður. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
23.982 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun