
Trent Wallpaper River Wandle - Morris & Co
Trent Wallpaper River Wandle – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Trent er áhrifamikið blómaveggfóður með stórum blómamótífum sem stillt er upp á móti ríkulegum bakgrunni af blágrænum og djúpbláum tónum. Trent var upprunalega hannað fyrir textíl en prentað fyrst á veggfóður árið 1888 með því fororði að þetta væri dýrasti prentaði textíll í sögu Morris & Co. En þá var prentun að sjálfsögðu mjög flókið handverk. Trent birtist hér í fyrsta sinn í marga áratugi sem hluti af hönnunarlínu fyrir safnið Emery Walker´s House – en Sir Emery Walker var virtur leturgerðarmaður, bókaprentari og náinn vinur William Morris.
Trent er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Lágmarkspöntun er 3m². Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð því veggir eru oft skakkir.
41.855 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun