Terre de Lin Poudre - Arte
Terre de Lin Poudre – Arte
Flamant Honoré veggfóðurslínan er hluti af belgíska vörumerkinu Flamant, sem margir þekkja hérlendis, m.a. fyrir vönduð húsgögn og innanhússhönnun. Lengi vel hefur Flamant í samvinnu við Arte skapað sínar eigin veggfóðurslínur sem orðnar eru íkonískar í heimi innanhússhönnunar. Hör er grunnurinn að hönnuninni en hör er almennt talinn fjölhæfasti vefnaðurinn í innanhússhönnun vegna endingar, öndunareiginleika og hlýlegs og náttúrulegs útlits. Honoré línan er virðingarvottur við þessa textílklassík, sem spannar rófið frá hinu hversdagslega til hins fágaða í þremur einstökum útgáfum af hörmynstri. Allar kalla þær fram sama náttúrulega sjarmann.
Terre de Lin er raunsæ túlkun á lausofnum hör. Þetta látlausa veggfóður kemur í fjölmörgum litum, allt frá mildum jarðlitum til líflegri tóna.
Terre de Lin veggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum síðar meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
31.093 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Vintage Palms - Boråstapeter
Le Papier Tissé Hazelnut - Arte
Cuadro Ochre - Arte
Granville Glazed Sage - Arte
Platinum Ash - Arte
Raphael Forest Blush - Sandberg
Palm Leaves, Mint & Yellow - Cole & Son
Opulence, 3D - Rebel Walls
Lin Tartufo - Arte