Tasar Palmier - Arte
Tasar Palmier – Arte
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í dökkum gulgrænum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
43.229 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Sabal Pearl - Arte
Kefli - Decomax Miniroller, 10cm 2 stk
Veggfóðurssvampur - Bostik Nr.3
Hidden Medallion - Boråstapeter
Hornaspaði - Friess, innhorn 100x75mm
Kefli - Friess, Profingrey 12cm
Satara, Burnt Orange & Sand on Black - Cole & Son
Puro Ash - Arte