St James Ceiling Willow - Morris & Co
St James Ceiling Willow – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Þetta margátta veggfóðursmynstur var upphaflega hanna af William Morris sem hluti af umboðsverkefni fyrir endurskreytingu á Grand Staircase í St James‘s Palace í London, árið 1881. Veggfóðursmynstrið St James Ceiling er yfirborðsprentað og hefur fallega ógegnsæja krítaráferð. Það er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum.
St James Ceiling er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
33.933 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun



























Lin Dunes - Arte
Pensill - Purdy, Pro-Extra Monarch 38mm
Kingdom of the Willow - Boråstapeter
Stars, Metallic Gilver on Midnight - Cole & Son
Fairies - Boråstapeter
Caroline Indigo Blue - Sandberg
Terre de Lin Rotin - Arte
Bluebell, Sage, Mint & Lilac on Dark Viridian - Cole & Son
Edge Kapok - Arte
Senzo Spot, Soot & Snow - Cole & Son
Myrten - Boråstapeter
Sophia - Boråstapeter
Svea - Boråstapeter
Weave Clay - Arte
Linda Clay - Sandberg
Shades Celestite - Boråstapeter
Jabu, Tangerine on Ink - Cole & Son
Feather Fan, Soft Olive - Cole & Son
Poppy, Blush - Sandberg
Morängen Blue - Sandberg
Linne Misty Blue - Sandberg