Krítartöflumálning – Smarter Surfaces™
Í boði sem biðpöntun
Smart Blackboard Paint
Með krítartöflumálningunni frá Smarter Surfaces er hægt að búa til krítartöflu beint á veggi. Málningin myndar mattan svartan flöt og er tilvalin handa þeim sem vilja gera krítartöflu heima, í skólastofu, á veitingastað eða á skrifstofu. Einnig er hægt að nota segulmálninguna frá Smarter Surfaces undir krítartöflumálninguna til skapa segulmagnaða krítartöflu. Nota má venjulega krít, blauta krít og krítarliti á krítarflötinn. Auðvelt er að hreinsa af henni með þurrum eða blautum klút.
Með krítartöflumálningunni er hægt að auka aðstöðu fyrir sköpun, skilvirkni og einbeitingu án þess að festa sig í stöðluðum stærðum af veggtöflum eða töflustöndum. Þannig er mögulegt að breyta heilum veggjum í krítartöflu eða bara nákvæmlega þeim svæðum sem hönnun og stærð rýmisins leyfa. Vinsæl lausn í eldhúsum, veitingastöðum, börum og galleríum.
- 5 ára ábyrgð
- Rispuþolin
- Selt í pakkasetti sem inniheldur tilskilin verkfæri
- Auðvelt í notkun – tvær umferðir. Þekur 6 m2
- Tilbúin til notkunar eftir 24 klst
- Lyktarlítil, leysiefnalaus, án isocynates og lágmarks VOC (rokgjörn lífræn efni)
6.766 kr.
Ekki til á lager