Simply Severn Dove - Morris & Co
Simply Severn Dove – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Severn veggfóðursmynstrið, sem er aðeins stærra í umfangi en hliðstæða og forveri þess í textíl, var upphaflega prentað á vinnustofu Morris í Suður London. Mynstrið er byggt upp af súlublómalaufum sem ramma inn stór útsprungin blómahöfuð og er dæmigert fyrir uppbyggingu margra af þekktustu blómalistaverkum Morris. Það er eitthvað fagurt og fornt við þetta veðraða en þó mjög svo glæsilega mynstur. Það er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum.
Severn er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.186 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun



























Skaft - Friess, SoftTouch 75-150cm
Nautilus, Coral and Soft Olive - Cole & Son
Puro Cloth - Arte
Pompeian - Cole & Son
Elliot, Dark Blue - Sandberg
Montagna Pearl - Arte
Cupula Lagoon - Arte
Etched Landscape - Boråstapeter
Tasar Bronze - Arte
Abanico 34004 - Arte
Lin Toffee - Arte