Riverbank Ponceau - Arte

28.900 kr. lengdarmetraverð

Riverbank Ponceau – Arte

Veggklæðningarnar í Boutique-línunni endurspegla japanskan glæsileika frá því um miðja síðustu öld. Eftir síðari heimsstyrjöldina upplifði Japan gífurlegan efnahagsvöxt sem leiddi til umbreytinga sem einkenndust af bjartsýni og framsækinni hugsun. Í innanhússhönnun birtist þessi vonarstemning í nýjum, að mestu glansandi efnum og glæsilegum mynstrum – sem gnægð er af í Boutique veggfóðurslínunni.

Riverbank er ofin veggklæðning, innblásin af klassískum veggteppum. Það sýnir gróskumikla árbakka með japönskum trönum sem kíkja upp úr gróðrinum. Þessi einstaka fuglategund táknar heppni og langlífi í Japan. Myndin er vísvitandi „pixluð“ sem tilvísun til bjartsýni Japana um miðja öldina.

Riverbank veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr textíl á non-woven bakhlið

28.900 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 120 cmMynsturhæð: 123 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 90515 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Tengdar vörur

Karfa

3

Millisamtala: 39.712 kr.

Skoða körfuGreiðsluferli