Refinement – Omexco
16.131 kr. lengdarmetraverð
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Refinement úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrutrefjum. Kjarni þessarar hönnunar felst í áþreifanlegum töfrum og fallega samsettu litamynstri sem lagt er þvert í lengjurnar. Refinement er úr bananaberki, bananastöngultrefjum og vatnaliljum. Það kemur í tveimur litatónum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Úðið bak veggfóðurs vel með vatni og leyfið því að sjúga í sig rakann í a.m.k. 20 mínútur. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun

































Abanico 34001 - Arte
Alicia - Boråstapeter
Capas 34304 - Arte
Corteza 34205 - Arte
Capas 34306 - Arte
Gunnebo - Boråstapeter
Pandan 34105 - Arte
Rosenvinge - Boråstapeter