Rambling Rose Leafy Arbour/Pearwood - Morris & Co
Rambling Rose Leafy Arbour/Pearwood – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Rambling Rose sýnir helgimynd skógarröltsins og sveitagarðanna; ensku rósina. Hún er tákn um jarðneska ást og hreinleika. Rósin var fremur sjaldgæft mótíf í veggfóðurshönnun William Morris en kom þeim mun oftar fyrir í veggteppum hans og ljóðum. Rambling Rose er frá 1877 og birtist hér í þremur litasamsetningum í hönnunarlínu sem tengist safninu Emery Walker´s House – en Sir Emery Walker var virtur leturgerðarmaður, bókaprentari og náinn vinur William Morris.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.892 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun





























Ewa, Dusty Pink - Sandberg
Vanilla Linen - Boråstapeter
Marlene Mural - Boråstapeter
Vega - Boråstapeter
P8030D horn
Olof Sandstone - Sandberg
Lana Toffee - Arte
Rose, Red & Leaf Green on Charcoal - Cole & Son
Meadow - Boråstapeter
CX196 ljósa-, lofta- og gluggatjaldalisti
C902 ljósa- og loftalisti
CB522 loftalisti