Puzzle Orange Ruby - Arte
Puzzle Orange Ruby – Arte
Puzzle er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrulegum sísalvef. Mynstrin eru rúmfræðileg, litrík og óregluleg með bæði beinum línum og bognum formum. Þó bútasaumurinn virki óreglulegur passa púslustykkin samt fagurlega saman. Ósvikið listaverk á vegg! Litir: Koksgrár, vínrauður, bleikur, kopar og drappaður.
Puzzle sísalvefurinn er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið bæði á vegg og á bakhlið veggfóðurs. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
41.200 kr. lengdarmetraverð














Nelson Juniper Green - Arte
Vintage Palms - Boråstapeter
Nelson Papyrus - Arte
Zen Mural, Graphite - Sandberg
Ovillo Linen - Arte
P8020 vegglisti
Lise, Misty Blue - Sandberg
Casalian Evergreen - Arte
Folklore - Boråstapeter
DX170-2300 gerefti
Julie, Dark - Sandberg