Pure Sunflower, Pearl/Ivory - Morris & Co
Pure Sunflower, Pearl/Ivory – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Pure Sunflower er þéttriðið eintóna veggfóðursmynstur, fullt af sólblómum, vínberjum og laufblöðum. Það er hannað upp úr upprunalegu Morris & Co mynstri frá 1879 en stækkað upp og litir hafðir lágstemmdari til að skapa nútímalegt yfirbragð.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.186 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun






























Fontvieille - Rebel Walls
Lin Perle - Arte
Midar, Cloud - Rebel Walls
Lin Wheat - Arte
Tree of Life, Honey - Sandberg
Terre de Lin Porcelain - Arte
Old Pine Trees - Rebel Walls
Terre de Lin Lune de Miel - Arte
Tunis, Cloud - Rebel Walls
Le Raphia Tissé Sand - Arte
Pallamoppa - Anza