Pure Lodden, Chalk/Eggshell - Morris & Co
Pure Lodden, Chalk/Eggshell – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Pure Lodden er stórmynstrað og nútímalegt veggfóður frá Morris & Co. Þetta er einfölduð útgáfa af upprunalega textílmynstrinu sem var hannað árið 1884. Hönnunin sýnir samhverfa stilka, blóm og laufblöð í lágstemmdum litasamsetningum en myndverkið er silkiprentað með handblönduðu bleki og litum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
39.168 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Dreamscape, Greige - Rebel Walls
Magnus, Indigo Blue - Sandberg
Hedda, Pastel - Sandberg
Vintage Rose - Boråstapeter
Eternal Flower - Boråstapeter
Daisy & Oak, Powder Blue/Blush - Morris & Co
Kefli - Friess, Rollo-Schaum 25cm
Forest Toile, Red - Sandberg
Chrysanthemum, Indigo - Morris & Co
Corteza 34201 - Arte
Watercolour Landscape - Boråstapeter
Raphael Forest Teal - Sandberg