“Nuvolette Metallic Gilver & Charcoal – Cole & Son (2 rúllur)” hefur verið bætt í vörukörfuna þína. Skoða körfu

Procuratie e Scimmie - Cole & Son
49.898 kr. rúlluverð
Procuratie e Scimmie – Cole & Son
Nafn veggfóðurslínunnar sem þetta mynstur tilheyrir vísar til samstarfs Cole & Son og ítalska hönnunarfyrirtækisins Fornasetti, sem þekkt er fyrir listræna, háklassa hönnun. Í Fornasetti línunni mætast breskt hágæða handverk og ítalskur húmor og hugmyndaauðgi. Saman skapa fyrirtækin einstaka töfra með endalausri sköpunargáfu og tímalausri fagurfræði.
Procuratie er nafnið á framhliðum húsa á Markúsartorginu í Feneyjum. Hér er það leikvöllur uppátækjasamra apa sem spóka sig meðal klassískra boga og íburðarmikilla súlnahandriða. Hinn einfaldi lágprentsstíll er í tímalausri litapallettu sem undirstrikar flókna teiknivinnu án þess að draga úr töfrum sjálfra bygginga torgsins.
49.898 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun
Rúllubreidd: 68,50 cmRúllulengd: 10 mMynsturhæð: 101,80 cm
Vörunúmer:
114/21041
Vöruflokkar: Cole & Son, Fornasetti, Veggfóður
Stikkorð: Dýr og náttúra, Óvenjulegt