Pimpernel, Bullrush/Russet - Morris & Co
Pimpernel, Bullrush/Russet – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Iðandi ryþmar og flókin uppbygging mynstursins Pimpernel gerðu það að verkum að Morris valdi einmitt þetta veggfóður til að skreyta borðastofuna sína í Kelmscott House. Veggfóðrið var hannað 1876 og er yfirborðsprentað þannig að finna má fyrir ójöfnunum í þrykkinu við snertingu. Það er fáanlegt í nokkrum ljúfum og fallegum litasamsetningum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.892 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Terre de Lin Saint Barth - Arte
Grandiflora Pearl - Rebel Walls
Pandan Beach - Arte
Lin Normandie Authentic Rust - Arte
Raku Crackle, Cream - Rebel Walls
Canvas Straw - Arte
Bird & Pomegranate, Turquoise/Coral - Morris & Co