Perception – Omexco
25.664 kr.
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Perception úr Intuition línunni er stórgert og stórglæsilegt veggfóður úr þrenns konar náttúrutrefjum úr hitabeltisplöntum; bakbak, bacnoc og pappírsgarni. Plöntuþræðirnir eru fléttaðir eða tvinnaðir saman í þykkan, endingargóðan trefjaþráð – sem oft er notaður í fléttuð húsgögn, mottur, box og fleira. Perception fæst í þremur afar fallegum náttúrutónum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Úðið bak veggfóðurs vel með vatni og leyfið því að sjúga í sig rakann í a.m.k. 30 mínútur. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Í boði sem biðpöntun

































Kefli - Decomax Miniroller, 10cm 2 stk
Shades Anthracite - Boråstapeter
Oriental Garden - Boråstapeter
Delilah - Boråstapeter