Peony Trellis, Bayleaf/Slate - Morris & Co
Peony Trellis, Bayleaf/Slate – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Peony Trellis veggfóðrið var upphaflega hannað sem borði en hefur nú verið þróuð til að mynda heildstætt mynstur. Viðfangsefnið eru stílfærðar bóndarósir og laufblöð sem hlykkjast tignarlega upp klifurblómagrind.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
38.229 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Hagtorn - Boråstapeter
Shades Barite - Boråstapeter
Cornelia - Boråstapeter
Lím fyrir túss-, segul- og skjávarpaveggfóður - Smarter Surfaces™
Veggfóðurslím - Arte Clearpro Extreme
Owen Jones, Forest - Morris & Co
Cascade, Leaf Green - Cole & Son
Palm Leaf - Boråstapeter