Oak & Blossom, Thyme/Woad - Morris & Co
Oak & Blossom, Thyme/Woad – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Oak & Blossom mynstrið var upphaflega ætlað fyrir steint gler. Nú þegar það hefur verið endurhannað sem veggfóður má vel greina skyldleikann við upprunalega tilganginn sem mynstur í glugga. Tvöföld rönd liggur undir glæsilegri uppröðun blóma, eikarlaufblaða og eikarhneta. Blokkprentaðri áferð hefur síðan verið bætt við þessa annars grafísku hönnun og mjúk litapallettan fer vel við röndóttan bakgrunninn.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.315 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Palm Jungle, Petrol & Lime - Cole & Son
Lin Potatoes - Arte
Fjölnota verkfæri fyrir málara - Purdy, lokanlegt
Lin Plume - Arte
Vega - Boråstapeter
Canvas Sage - Arte
Ebba, Blue - Sandberg
Blomsterhav - Boråstapeter
Lin Normandie Petit Nuage - Arte
Lin Normandie Cimento - Arte
Fairies - Boråstapeter
Sergé Denim - Arte
Stig Lindberg Fruktlåda - Boråstapeter
Fredrika - Boråstapeter
Málningarbakki - Purdy, 46cm
Rose Garden - Boråstapeter
Tasar Palmier - Arte
Marigold, Wedgwood - Morris & Co
Pushkin, Taupe - Cole & Son
Ebba, Green - Sandberg
Squirrel Mountain, Sand - Rebel Walls
Flamingos, Blush & Cerise on White - Cole & Son
Cornflower, Rose/Wode - Morris & Co