Norbury, Slate/Madder - Morris & Co
Norbury, Slate/Madder – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Oddbogamynstrið Norbury endurspeglar flæði og flóð árinnar Norbury Brook. Mynstrið var upphaflega hannað sem veggteppi í kirkjulegum stíl. Það einkennist af blómaborða í miklum smáatriðum og laufblöðum með damask strúktúr. Við endurgerðina var mynstrið þróað yfir í veggfóður en með fíngerðri höráferð sem vísar til textílupprunans.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.759 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Arrow Winter Gold - Arte
Sabal Silver Forest - Arte
Polka Stripe - Boråstapeter
Arne Jacobsen Trapez - Boråstapeter
Idun Misty Blue - Sandberg
Parrot - Boråstapeter
Tree Canopy - Boråstapeter
My Feldt Skogsviol - Boråstapeter
Calm White - Boråstapeter
Polka Stripe - Boråstapeter
SX138 gólflisti
Palm Spring, Pearl - Rebel Walls
Västigårn - Boråstaper
Lo Pastel - Sandberg
CX132 loftalisti
Lin Vallauris - Arte
Cornelia - Boråstapeter
Pantheon Quartz - Arte
Scaramouche - Cole & Son
Magnolia Garden - Boråstapeter
Morängen, Pastel - Sandberg
Vintage Palms - Boråstapeter
St Johns Border, Sussex Rush - Morris & Co