Medjoul Zinc - Arte
Medjoul Zinc – Arte
Medjoul er mynstur úr Babylon línunni, en Babýlon í Mesópótamíu var fyrsta stórborg heimsins, oft nefnd vagga siðmenningarinnar. Innblásturinn að Medjoul mynstrinu er fenginn þaðan úr fornum fleygbogahandritum sem voru skorin út og teiknuð í leirtöflur og klettaveggi. Þessi myndhöggvaratækni í leir var haft að viðmiði fyrir Babylon línuna. Hönnun hennar var einmitt þannig unnin að leirtöflur voru mótaðar í höndunum af mikilli nákvæmni og síðan var mynstrið yfirfært á textílefni fyrir veggfóður. Þrívíddarahrifin minna helst á höggmyndaflísar unnar í gifs. Mynstrið Medjoul tekur mið af útliti döðlupálmans, sem er algeng planta í Miðausturlöndum.
Medjoul er selt í ferningapörum 110 cm x 90 cm = 0.99 m2 (sem eru tvær 55 cm x 90 cm flísar). Mynstrið má endurtaka eins oft og vill.
Medjoul veggefnið er mjúkur textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs – límið þarf að vera sterkara en það sem notað er við uppsetningu hefðbundins veggfóðurs vegna þyngdar veggmyndanna. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
99.375 kr.
Í boði sem biðpöntun

World Map - Rebel Walls
Tropical Bellewood, Graphite - Rebel Walls
Pallamoppa - Anza, skiptimoppa
La Prairie Exotic Brown - Arte
May Meadow - Rebel Walls
Qatar, Sand - Rebel Walls
Palm Leaf - Boråstapeter
Vintage Flora Pastel - Rebel Walls
Cittá di Castello Terrracotta - Arte
Glerskafa - Allway, lítil 5 blöð
Celeste, Misty Blue - Sandberg
Blooming Park Green - Rebel Walls
Le Raphia Tissé Mint - Arte
Flower Thread Sand - Rebel Walls
La Prairie Papaya - Arte
Terre de Lin Alizé - Arte
Year Of The Tiger Velvet - Rebel Walls
Le Sisal Antique White - Arte
Factory Window - Rebel Walls