Manoir Feather - Arte
Manoir Feather – Arte
Skrautþiljur í öllum stærðum og gerðum hafa prýtt veggi og loft um aldir. Sem dæmi má nefna gólflista, loftalista, brjóstþil og veggþiljur í virðulegum stórhýsum, glæsihöllum og friðlýstum byggingum. Þessi form eru innblásturinn fyrir Objet veggfóðurslínuna hjá Arte. Glæsilegt veggfóðrið er bæði auðvelt í uppsetningu og hefur fallegan lit og áferð sem skapar ró í rýmin. Áferðin hefur yfirbragð rúskinns og skapar áþreifanlega mýkt. Þar sem veggfóðrið er í þrívídd hefur það einnig jákvæð áhrif á hljóðvist.
Manoir er selt í lengjum í stærð 298 cm x 120 cm = Alls 3,59 m2. Hægt að endurtaka mynstrið til hliðar.
Manoir veggefnið er mjúkur textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Manoir hefur hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleika. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem mælt er eindregið með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið
119.500 kr.
Í boði sem biðpöntun











Scaramouche - Cole & Son
Lin Normandie Milk - Arte
Ruby Blue - Rebel Walls
Lin Most White - Arte
Stars, Metallic Gold on Linen - Cole & Son
Miami - Cole & Son
Snakeshead, Charcoal/Spice - Morris & Co
Magnus, Indigo Blue - Sandberg
Strawberry Thief, Crimson/Slate - Morris & Co
Medina - Boråstapeter
Dahlia - Boråstapeter
Tasar Marigold - Arte
Nelson Dandelion - Arte
Palm Leaves, Alabaster Pink & Mint - Cole & Son