Mallow Powder Blue - Morris & Co
Mallow Powder Blue – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Mynstrið Mallow af heilu engi af moskusrósum er einfalt í litasamsetningum en samt flókið. Það var upphaflega hannað árið 1879, er friðsælt og passar vel við flest innanstokks. Veggfóðrið er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum.
Mallow er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
29.261 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun



























Sabal Khaki - Arte
Vanilla Linen - Boråstapeter
Éclat Rust - Arte
Lin Normandie Eucalyptus - Arte
Betty, Honey - Sandberg
Leiria, Sand - Rebel Walls
Bouclé White Smoke - Arte
Manchas Umber - Arte
Lin Canvas - Arte
Camellia, Coral & Duck Egg on Eau du Nil - Cole & Son
Stars, Metallic Gilver on Ballet Slipper - Cole & Son
Nongo Olive - Arte
Camago Bone - Arte
Lovisa, Pink - Sandberg
Skaft - Purdy, Power Lock 61-122cm
Chanderi Moonshine - Arte
Itaya Cedar Brown - Arte
Norwich, Pearl - Rebel Walls
Hip Rose - Boråstapeter
Tana Brick - Arte
Alexandra Sage Green - Sandberg
Olof Sandstone - Sandberg
Willow Boughs, Minor Privet - Morris & Co
Cupula Tan - Arte